BEGIN:VCALENDAR
VERSION:2.0
METHOD:PUBLISH
CALSCALE:GREGORIAN
PRODID:-//WordPress - MECv7.33.0//EN
X-ORIGINAL-URL:https://dagatal.is/
X-WR-CALNAME:Dagatal.is
X-WR-CALDESC:
X-WR-TIMEZONE:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:VTIMEZONE
TZID:Atlantic/Reykjavik
X-LIC-LOCATION:Atlantic/Reykjavik
BEGIN:STANDARD
TZOFFSETFROM:+0000
TZOFFSETTO:+0000
TZNAME:GMT
DTSTART:20260711T214001
END:STANDARD
END:VTIMEZONE
REFRESH-INTERVAL;VALUE=DURATION:PT1H
X-PUBLISHED-TTL:PT1H
X-MS-OLK-FORCEINSPECTOROPEN:TRUE
BEGIN:VEVENT
CLASS:PUBLIC
UID:MEC-25e2a30f44898b9f3e978b1786dcd85c@dagatal.is
DTSTART;TZID=Atlantic/Reykjavik:20230221T000000
DTEND;TZID=Atlantic/Reykjavik:20230222T000000
DTSTAMP:20260529T112848Z
RDATE;VALUE=DATE:20230221,20240213,20250304,20260217,20270209,20280229,20290213,20300305
CREATED:20260529
LAST-MODIFIED:20260529
PRIORITY:5
SEQUENCE:3
TRANSP:OPAQUE
SUMMARY:Sprengidagur
DESCRIPTION:Sprengidagur eða sprengikvöld er þriðjudagur í föstuinngangi fyrir lönguföstu, 7 vikum fyrir páska og getur borið upp á 3. febrúar til 9. mars. Elsta heimild um hið íslenska heiti dagsins tengist matarveislu fyrir föstuna. Er það í íslensk-latnesku orðasafni Jóns Ólafssonar Grunnvíkings frá því kringum 1735. Þar segir hann Sprengikvöld þýða orðrétt kvöld sprengingar, það er kvöld miklifenglegrar átveislu með allskonar meðlæti en nefnir einnig að þetta sé sveitamál.\nKjöt þótti í kaþólskum sið ekki við hæfi föstuinngangsdagana tvo fyrir lönguföstu (mánudag og þriðjudag) og voru því oft miklar kjötkveðjuhátíðir sunnudaginn eða sunnudagskvöldið þar á undan. Kjötveislan kann við siðaskiptin að hafa flust frá sunnudagskvöldinu yfir á þriðjudaginn. Erlendis nefnist þessi dagur almennt „feiti þriðjudagur“ (mardi gras).\nÍ ferðabók Eggerts Ólafssonar og Bjarna Pálssonar frá árunum 1752-57 segir að „Kveld hvíta Týsdags heitir sprengikveld því þá fékk allt vinnufólk svo mikið að eta af hangikjöti sem framast gat í sig látið en ket var síðan ekki etið fyrr en á páskum.“ Hangikjöt var lengstum helsti veislukosturinn enda salt af skornum skammti. Frá síðasta hluta 19. aldar er vitað um saltkjöt og baunir á sprengidag og er sú hefð nú almenn.\nHeimild: https://is.wikipedia.org/wiki/Sprengidagur ( https://is.wikipedia.org/wiki/Sprengidagur )\n
URL:https://dagatal.is/events/sprengidagur/
END:VEVENT
END:VCALENDAR
