Skip to content

Aðfangadagur jóla

Aðfangadagur eða Aðfangadagur jóla (er á sér gömul samheiti sem jólaaftannaffangadagur og tilfangadagur) er hátíðardagur í kristinni trú. Orðið aðfangadagur mun að líkindum vera þýðing á gríska orðinu parasceve (undirbúningur) sem notað var um daginn fyrir páskahelgina, það er föstudaginn langa. En er nú orðið nær eingöngu haft um 24. desember, dagurinn fyrir jóladag og því nefndur svo. Aðfangadagur páska og aðfangadagur hvítasunnu voru einnig áður fyrr nöfn á laugardögunum fyrir þessa helgidaga.

Samkvæmt hátíðadagatali Íslensku þjóðkirkjunnar er aðfangadagur jóla ekki sérstakur hátíðisdagur. Hann markar lok aðventu eða jólaföstu og kl. 18.00 hefst jóladagur. Ástæðan fyrir þessu er, að í stað þess að miða upphaf dags við sólarlag, eins og Gyðingar, fastsettu kristnir menn upphaf daga við miðaftann og lifir það enn í hátíðadagatalinu. Íslendingar fylgja þessu enn hvað jólin snertir.

Heimild: https://is.wikipedia.org/wiki/A%C3%B0fangadagur

  • 00

    days

  • 00

    hours

  • 00

    minutes

  • 00

    seconds

Date
des 24 2026
Time
Allan daginn
Category

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *