Skip to content

Fullveldisdagurinn

Fullveldisdagurinn er svo nefndur til minningar um að þann 1. desember 1918, tóku gildi milli Íslands og Danmerkur Sambandslögin, sem voru lög um það hvernig Ísland stóð í sambandi sínu við Danmörku. Í þeim kom meðal annars fram viðurkenning Danmerkur á því að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. Dagurinn varð smám saman að almennum þjóðhátíðardegi fram að lýðveldistíma og var Íslenski fáninn dreginn að húni í fyrsta sinn sem fullgildur þjóðfáni þennan dag.

Lítið var samt um hátíðahöld þegar upp á hann var haldið í fyrsta sinn árið 1918, enda veturinn með eindæmum harður og oftast kallaður „frostaveturinn mikli“. Katla gaus einnig frá 12. október til 4. nóvember og seint í október barst drepsótt sú sem kölluð var spænska veikin til landsins og létust hundruð manna. Loks brast á nýtt kuldakast þegar veikin stóð sem hæst og ekki þótti ráðlegt að hafa langa útisamkomu við þessar aðstæður.

Heimild: Wikipedia: https://is.wikipedia.org/wiki/Fullveldisdagurinn

  • 00

    days

  • 00

    hours

  • 00

    minutes

  • 00

    seconds

Date
des 01 2026
Time
Allan daginn
Organizer
Guðmundur Guðmundsson
Guðmundur Guðmundsson
Phone 771 3100
Email jonsig@ikmail.com
Website Svörur

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *